|
|
02.05.2011 17:53:09 / Alli
***ATHUGIÐ*** Hér til vinstri er kominn nýr hlekkur sem kallaður
er "Video Indyvinafélagsins", þarna munum við
bauna inn þeim videoum sem til falla í ferðum.
Þau voru mörg blöðin sem brotin voru í Indy sögunni á Verkalýðsdeginum 1.Maí. Besta ferð Indyvinafélagsins hingað til var farinn á slóðir sem engum óraði fyrir að væru færar á þessum gömlu gullmolum. Vinsæl vor-leið fyrir sleðamenn á Akureyri liggur um svokallaða Syðri-Skál í Hlíðarfjalli. Skálin getur verið erfið yfirferðar jafnvel fyrir nýju tækin í ákveðnum færum, en reynist jafnan engin fyrirstaða fyrir hina aflmiklu grófbelta sleða nútímans. Hinsvegar uppskáru menn fátt annað en góðlátlegan hlátur þegar þeirri hugmynd var varpað fram að nota þessa leið til uppkeyrslu fyrir Indy-ferð! Brekkan er löng og krefst langvarandi botngjafa, og færi mun algerlega ráða því hvort þessir gömlu molar á sínum 20-30mm beltum eiga sér viðreisnar von. Segja má að skálin sé sunnan skíðasvæðisins.   Það er skemmst frá því að segja að 8 af 9 sleðum sem hófu för fóru upp skálina í fyrstu tilraun, þ.m.t Indy XCR 440 '92, sem er reyndar undratæki þegar kemur að virkni. Það var mál manna að hann hefði dregið á XLT 600cc sleðana í brekkunni, enda ökumaðurinn ekki af ódýrari gerðinni, Stefán Gullsmiður frá Einskíðingi.  Ferðin var m.a prufutúr á "nýjum" Polaris Ultra '97 sem vefstjóri hafði nýlega komist yfir. Fyrir átti kallinn annan sambærilegan sleða sem fjallað hefur verið um hér áður, en í þeim sleða lá mikil viska í kringum blöndungs- og kúplingsuppsetningu samhliða SLP High RPM pípunum sem í honum voru. Þessi uppsetning var færð milli Ultra sleðana fyrir ferðina, og ekki er á neinn hallað þegar sagt er að Ultran hafi skarað framúr í afli, í samanburði við aðra sleða ferðarinnar. Sleðinn er samkvæmt rannsóknarvinnu vefstjóra sá eini þeirra fjögurra Indy Ultra SP '97 sem ennþá lifir í sinni upphaflega fjólubláu mynd.   En þó að Ultran hafi klárlega skarað framúr hvað varðar afl og spyrnugetu þá var annar sleði sem stóð uppi sem eiginlegur sigurvegari þessarar ferðar. Títtnefndur Indy XCR 440 '92 hefur komið mönnum á óvart í hvert skipti sem hann birtist á snjónum, og er því nú þannig farið að menn slást um hann í ferðum. Á mælikvarða þessa gömlu sleða er hann einstaklega meðfærilegur og skemmtilegur sem leiksleði. Við alltof mörg tækifæri vantaði myndavélina á loft þegar Stefán ökumaður sleðans lét til sín taka í veggbröttum brekkum og hliðarhalla, og beitti sömu tækni og nýmóðins vélsleðamógúlar á borð við Chris Burandt og Bret Rasmusssen hafa verið að innleiða í sportið.   Spyrnur, stökk og annar djöfulgangur réðu ferðinni fram eftir degi, en í lok ferðar var ákveðið að reyna hvað græjurnar gætu í "fjallaklifri" og gekk það algerlega fram af mönnum hvað mátti bjóða þessum gæðingum. Myndin hér að neðan er svo sem ekki sérstaklega greinileg, en ef vel er horft má sjá tvo depla efst í skarðinu beint af augum, en þar voru á ferð Stefán Gull, nú á RXL '92 og Pétur Birgis á sínum RXL '91. Slíkar brekkur reyndust engin fyrirstaða.  Ég held að allir séu því sammála að þetta hafi verið best heppnaða Indy ferð hingað til. Enn og aftur hefði veður mátt vera betra, en ekki var að sjá að það hefði teljandi áhrif á sleðana sem allir snérust eðlilega og spóluðu sig ágætlega áfram í vorfærinu. Það er í sjálfu sér ekki ólíklegt að þetta hafi verið síðasta ferð Indyvinafélagsins þennan vetur, þar sem þó þetta margir sleðar nást saman, en aldrei skal segja aldrei, menn gætu vel líklega gefið sér tíma í eins og eina kvöldferð eða svo. Að lokum má segja frá innbyrðis viðskiptum sem eru nýgengin í gegn. Vefstjóri hefur nú látið af hendi annan Indy Ultra '97 sleðann sinn, og hvert annað en til Péturs Birgissonar sem skákar nú (og gerði svo sem áður) öllum öðrum í Indy eign sinni.  Vefstjóri þakkar Pétri fyrir viðskiptin og þótt eftirsjáin sé nokkur þá hefði sleðinn ekki getað farið á betri stað, svo mikið er víst. Það sem einu sinni fer inn á verkstæði Péturs virðist aldrei rata þaðan út, nema þá í sleðaferðir
»
28.04.2011 10:02:40 / Alli
Sælir lesendur góðir. Indyvinafélagið er félagsskapur sem iðkar áhugamál sitt á nokkuð undarlegan hátt. Til undantekninga telst ef menn hafast út úr skúrnum til að brúka græjurnar og það virðist sem aðal skemmtunin felist í því að finna tækin og eignast, að ógleymdu hvers kyns viðhaldi og betrumbætingu tækjanna. Það var þó viðbúið að loksins þegar menn hefðu sig á skaflinn og rifjuðu upp taktana, þá myndi einhver gusa fara af stað. Sú varð raunin, menn hafa hver í sínu horni verið í viðskiptum með þessa fáu Indy-a sem í boði hafa verið, og hópurinn hefur bólgnað verulega á síðasta mánuði eða svo. Fyrr í vetur hafði Rúnar Vatnsdal haldið upp í merkjum félagsins með því að versla eitt stk Indy XLT Special árgerð 1997. Við nánari skoðun kom á daginn að sá sleði var innfluttur af einstakling um aldamótin. Í krafti þekkingar okkar á sögu þessara gripa hefur okkur oft tekist að leita uppi sjaldgæf eintök af sleðum hérlendis, og menn voru einmitt sammála um að svona sleði hefði ekki verið fluttur inn af umboði á sínum tíma, sem reyndist svo rétt. Það kæmi okkur á óvart ef annar svona sleði fyrirfinnst hérlendis.
Eitt af þeim verkefnum sem lagt var uppí eftir Indy túrinn á dögunum var að finna gott eintak af Indy Sport 340 árgerð 1990. Skilyrðin voru einföld, það þurfti að vera Indy Sport, og hann þurfti að vera blár. Sömuleiðis þurfti hann að vera í hinu eiginlega Indy boddíi, ekki flata boddíinu sem var ríkjandi frá ca ´82 til ´88. Með öðrum orðum þýddi þetta að sleðinn varð að vera 1990 módel, það er jú eina módelið sem þessir þrír hlutir fara saman (Indy Sport + blár + nýrra boddílúkk). Þetta er vel líklega það vonlausasta verkefni sem við höfum staðið frammi fyrir. Örfáir svona sleðar komu á sínum tíma og líkurnar á að finna einn heilan voru nánast engar. Okkur reiknast til að 3-4 sleðar hafi komið sem uppfylla þessi skilyrði (við erum hér að tala um stutta 121“ sleða, ekki lengri GT útfærsluna) svo að möguleikinn á að slíkur sleði hefði lifað af rúmlega 20 ára notkun var ansi veikur. En viti menn, nánast strax þegar leitin hófst fannst eintak í ótrúlega góðu ástandi. Til að toppa allt var það eintak sem kunningi og vinur kaupandans var nýbúinn að eignast. Alveg hreint með ólíkindum.
Margir gætu eflaust spurt hvað væri svona merkilegt við þann sleða, hann er jú bara 340cc og fegurð þessarar litasamsetningar er umdeild svo ekki sé meira sagt. En smekkur manna er misjafn, og oftar en ekki snertir þetta einhverjar minningar úr fortíðinni....hver man ekki eftir nágrannanum eða vininum sem átti sleða sem þig sjálfan langaði óstjórnlega mikið í, en gast ekki uppfyllt vegna peningaskorts eða annarra aðstæðna ? Þessu gleyma menn seint, og það er alltaf gaman að uppfylla gamla drauma eftir á. Og talandi um nýleg viðskipti. Vefstjóri hefur löngum verið veikur fyrir Polaris Ultra sleðum, enda sannarlega einhverjir alskemmtilegustu og kraftmestu Indy-ar sem framleiddir voru. Þriggja cylendra 680cc mótor sem oftar en ekki var „pípaður“ hérlendis. Fyrir margt löngu las ég m.a á erlendri sleðasíðu að Polaris framleiðandinn hafi beinlínis ráðlagt mönnum eftir á að setja pípur í Ultra sleða þar sem orginal pústið hefti afl sleðans óeðlilega mikið. Seinni tíma rannsóknir hjá aftermarket fyrirtækjum eins og SLP og PSI sýndu þetta svart á hvítu, Ultra var að græða 30-40 hestöfl á pípuísetningu sem er með því almesta sem þekkist í þessum eldri vélum. Nokkrir svona sleðar rötuðu til landsins árið 1996 og 1997. Hér er enn og aftur talað um INDY/Wedge boddíið. Nokkrir eftirlifandi eru enn í umferð í einhverri mynd og tveir af fjórum ´97 sleðum sem komu eru nú í höndum vefstjóra. Sá seinni er nýkominn norður í land. Sá sleði byrjaði líf sitt á Siglufirði og var nú síðast á Ísafirði. Undarlega gott eintak af sleða sem ekinn er 959mílur frá upphafi. Þarna er komið gott project til að breyta í MINT condition eintak.
....og talandi um mint condition eintök af Indy. Gauti Möller klófesti á haustdögum gríðarfallegan XCR 600 '96 sem er nokkurn vegin orðinn flaggskip flotans hvað útlit varðar (og afl ef hann væri spurður, verst að hann mun tapa fyrir Ultra sleða vefstjórans í spyrnu von bráðar) 

Ennþá eru ótalinn viðskipti Péturs Birgissonar og tengdra aðila. Nýverið eignaðist sá hópur fallegan XCR 440 ´95 sem mun klárlega verða fantagræja. Þeir félagar liggja einnig á XCR 600 ´95 sem verið er að koma á lappirnar. Þá herma einnig fregnir að þeir félagar hafa víkkað safn sitt af Indy 650 sleðum enn frekar, og komist yfir 2 stk af ´91 650 !! Því miður ligg ég ekki á myndum af þessum tækjum, en þeim verður komið upp við tækifæri. Að lokum ætla ég að lýsa undrun minni á því hversu ílla gengur að leita uppi góð eintök af Indy 500 sleðum! Það virðist vera þónokkuð til að Classic sleðum, sem eru nokkurn vegin sömu sleðarnir í eðli sínu, en það breytir því ekki að undarlegt er hversu erfitt virðist vera að finna góðar fimmur með orginal útliti. Menn mega endilega gefa sig fram ef þeir eiga eða vita um ´89-´93 Indy 500 sleða. Látum þessu þá lokið í bili, en ferð á vegum Indyvinafélagsins er í vændum, og því má treysta að bæði mynda- og videotökuvélar verða með í för!.
»
14.04.2011 11:09:49 / Alli
 Hér að ofan má sjá forláta Polaris Indy Sport árgerð 1990.
Indyvinafélaginu sárvantar svona sleða í safnið og eru lesendur hér beðnir um að láta í sér heyra ef þeir eiga eða vita um svona sleða sem gæti verið til sölu. Best væri að fá sendan póst á tölvupóstfangið indyvinafelagid@gmail.com , en einng má hringja í síma 844-4791 eða 891-7976. Þetta er verkefni sem allir þurfa að leysa í sameiningu! Bestu þakkir. Indymenn. **EDIT** AÐ sjálfssögðu mætti Cobolt foringinn með einn slíkan norður í land eftir hina árlegu Polaris ferð. Gaman þegar hlutirnir ganga svona vel!
»
11.04.2011 08:55:09 / Alli
Kæru lesendur. Það kom loksins að því að menn rifu gömlu tuggurnar úr skúrunum og héldu til ferðar. Áfangastaður var Glerárdalurinn góði ofan Akureyrar, þótt víða hafi verið ákjósanlegra færi og snjóalög. Því má þó ekki gleyma að meirihluti meðlima Indyvinafélagsins sleit (sleða)barnsskónum á Glerárdal og því lá beinast við að renna þangað. Menn þurftu að aka áleiðis upp að skálanum Fálkafelli til að taka af í snjó og reyndist það ekki vandamál, vegurinn sæmilegur og menn vel keyrandi. Fyrirfram hafði því verið spáð að a.m.k einn sleði kæmi heim í spotta, þar sem slíkt er ekki óvanalegt í ferðum sem þessum. En viti menn, þrátt fyrir ýmsa kvilla á borð við hæðaveiki, snúningsleysi, startspotta-slit, slaka heddpakkningu og yfirfyllingar í blöndungum þá fóru allir í gang á endanum og óku sem enginn væri morgundagurinn.  Menn voru mættir á „skaflinn“ uppúr hádegi, vopnaðir 8stk af Indy sleðum og stútfullu matarboxi sem innihélt m.a 25 pylsur og brauð, 2 einnota grill ásamt hvers kyns meðlæti. Meiningin var að stoppa í einhverju gilinu og fíra upp í einnota grillinu. Raunin varð þó sú að mjög vindasamt reyndist á fjöllum og undir lok ferðar jaðraði við ofsaviðri. Aðstæður voru þó annars í lagi, sæmilegt vorfæri og nokkuð bjart nema síðasta hálftíma ferðar. Margir skemmtilegir staðir eru á Glerárdalnum, og meðal annars fannst þetta fína gil og beini kafli sem var fullkominn kandidat fyrir smá fjallarall. Má hér sjá Gauta Möller taka á sínum forláta XCR 600 '96  Sigurður Blöndal er orðinn samvaxinn sínum RXL, enda býr hann yfir einstökum skilningi á eðli EFI (Electronic Fuel Injection) sleðum.  Hápunktur ferðarinnar var sögustund og gestabókarskrif í skálanum Lamba. Á þeim tímapunkti hafði þá gert leiðindaveður með gríðarlegum vindhviðum svo grillið var blásið af. Menn dóu þó ekki ráðalausir, heldur kveiktu upp í kvikindinu þegar til bæja var komið, innandyra í höfuðstöðvum Cobolt á Akureyri.    Hér var því um að ræða fyrstu Indy-ferðina síðan sú alfyrsta var farinn í Apríl 2009. Engin ferð var farinn árið 2010 sökum tímaleysis og annarra þátta. Það varð hverjum manni ljóst í þessari ferð að slíkt má ekki henda aftur. Það er stórkostleg skemmtun að hverfa aftur til upprunans og ferðir á þessum sleðum er í raun gott andsvar við leiðinlegu tíðarfari eins og hefur plagað okkur Norðlendinga nú seinni part vetrar. Þessir sleðar eru jafn skemmtilegir hvort sem er í púðri eða hjarni, en slíkt á engan veginn við sleða af nýrri módelum. Hér talar ritari af reynslu þar sem hann ekur á báðum vígstöðvum. Verði ekki stórkostleg breyting á veðurfari á næstu vikum mun 2009 módelið verða skilið eftir heima, og Indy teymdur út á næsta snjóskafl.
»
14.01.2011 21:09:55 / Alli
Við höfum fengið veður af því að þessi gríðarfallegi Indy 400 sé nú til sölu. Sleðinn er 1990 árgerð, er ótrúlega heill og staðsettur á Egilsstöðum. Eigandinn heitir Einar. Hægt er að ná sambandi við eiganda gegnum tölvupóstinn einarkiller@hotmail.com
»
13.01.2011 21:20:09 / Alli
Jæja.
Mér, og eflaust nokkrum öðrum til mikillar gleði hef ég aftur fundið út leið til að hlaða myndum inn á færslur á þessari ágætu síðu. Það er því tilvalið að taka smá umfjöllun um haustið.
Snjórinn kom snemma í ár fyrir norðan, og bestu túrar vertíðarinnar hingað til voru teknir seint í Nóvember og snemma í Des. Menn voru búnir að vera brasa í skúrum frá miðju sumri og langar mig að þakka öllum sem sendu inn fréttir og myndir á veffang Indyvinafélagsins = indyvinafelagid@gmail.com
Við félagarnir erum búnir að leggja undir okkur þónokkra skúrana sem sumargeymslur fyrir sleðana, og reglulega var farið í heimsóknir í hvern og einn. Man ekki betur en þessi mynd hafi verið tekin á sólríkum degi í Júlí í sumar.

Þegar hausta fór fengum við veður af eigendaskiptum á einum fallegasta Indy 400 sleða sem ég hef séð lengi. Vinur okkar Óskar frá Höfn hafði þá selt þennan eðal austur á firði og núverandi eigandi heitir Einar og er á Egilsstöðum ef ég skyldi rétt.

Við og við berast okkur myndir af eilítið nýrri sleðum, og hér að neðan er til dæmis 1998 módelið af Indy Ultra Touring, sem virðist vera í svo til flekklausu ástandi. Jón heitir eigandinn og er suður á landi. Það er alltaf jafn gaman að sjá sleða í svona góðu ástandi og persónulega þykir mér alltaf vænt um "Aggressive" boddíið sem verður æ sjaldgæfara hérlendis. Ég mæli með því að menn fari að gera sér grein fyrir hvað þeir eru með í höndunum, þetta eru frábærir sleðar og eru eiginlega nú þegar orðnir klassískir.

Víkur þá sögunni aftur að áðurnefndum Óskari frá Höfn. Ekki var hann að hætta í sportinu með sölunni á Indy 400 '90, heldur endurnýjaði hann tugguna og fékk sér Indy XC 700 '98 módel. Af meðferðini og útlitinu á 400 sleðanum að dæma, þá þarf ekki að hafa miklar áhyggjur af þessum 700 sleða.

Áður en snjóa fer gerðu Indymenn sér ferð í "Gullkistuna", geymslu þar sem einungis eru geymdir sleðar í óaðfinnanlegu ástandi. Eins og gefur að skilja var þessi geymdur fremst, Indy XLT Special '95.

Hér að neðan er svo nýjasti sleði Rúnars Vatnsdal, sem er óðum að yfirtaka krúnuna í Indyvinafélaginu. Maðurinn á nú orðið all nokkra sleða sem allir eru í frábæru ástandi, og ekki verður langt um liðið þangað til þessu lítur út sem nýr. Indy XLT Special '97.

Svo virðist sem Indymenningin hafi farið rólega af stað þessa vertíðina og hefur oft á tíðum verið undarlega lítið af sleðum til sölu. Þó hafa nokkur eintök dottið inn af og til, t.d gríðarflott eintak af Indy 500 '91 á Dalvík sem seldist að því er virðist strax. Einnig hefur sést til Indy Sport 440 '93 og Widetrak '91 á auglýsingasíðunum, ásamt 2 stk af Indy XLT Touring '96 sem voru komnir í Evolved boddíið. Að lokum sást til sjaldgæfs tækis til sölu, Indy XCR 600 SP '97 sem er í áðurnefndu Aggressive útliti. Mér segir svo hugur að enginn þessara sleða muni verða til lengi, nú er snjórinn kominn og alltaf er pláss fyrir svona tæki í skúrum manna.
Og talandi um netsíður er varða þessa mola, ráðlegg öllum að kíkja við tækifæri inn á http://snjolfur.123.is/ sleðahóp manna sem brúka gamla Indy-a að því virðist allar helgar. Ekki þótti undirrituðum heldur leiðinlegt að sjá gömlu "fimmuna" mína í þessum hóp, fyrsta sleða sem ég eignaðist. Hann virðist enn lifa góðu lífi.
Haldið áfram að vera duglegir að senda myndir á netfangið!
Kv. AÓ.
»
06.12.2010 10:06:53 / Alli
Sælir allir. Nú hefur komið til tals að fækka um einn í safninu. Til sölu er Polaris Indy Storm 800cc, árgerð 1995.
Sleðinn er keyrður ca 1300 mílur og er í mjög góðu ástandi svo vægt sé til orða tekið. Á honum er nýsprautað húdd með nýjum húddstrípum og gleri. Beltið er 25mm fullblock með 48 nöglum. Sleðinn er algjörlega óskemmdur og óslitinn. Skipt var um legur á sveifarásnum nú í haust og allar pakkningar og pakkdósir. Nú er bara að draga í gang og halda til fjalla. Ef áhugi er fyrir gripnum þá óskast tilboð í gripinn send á indyvinafelagid@gmail.comKv. AÓ. **EDIT**
Ekki tók það langan tíma, þessi sleði er seldur og fær framhaldslíf í Danmörku, af öllum stöðum! Óska nýjum eiganda til hamingju með molann.
»
28.10.2010 21:48:19 / Alli
Já...þetta er með ólíkindum. Á þetta stuttum tíma, með svona "leiðinlegt" lén, og fyrir svona takmarkaðan hóp (eða svo hélt ég allavega) þá er þetta uppskeran.
Ég vil þakka öllum fyrir innlitin, vonandi er góður vetur framundan með tilheyrandi látum og myndatökum.
Eins bið ég menn að afsaka hversu lítið er sett inn af myndum þessa dagana, en það er sökum krankleika þessara bloggsíðna, mér er skyndilega orðið ómögulegt að hlaða inn myndum með sama móti og áður.
Kv. AÓ.
»
26.08.2010 11:54:45 / Alli
Jæja góðir lesendur, vertíðin er þá endanlega úti þetta season-ið. Þetta var um margt athyglisverður vetur, eins hefur verið komið inn á í fyrri færslum. Ekki getum við Norðlendingar kvartað yfir snjóleysi, hér var allt orðið hvítt í nóv/des og menn voru að fara síðustu ferðirnar um miðjan Júní. Hinsvegar kom nánast aldrei vetur í mörgum landshlutum, og líklegast komust Indy sleðarnir fremur auðveldlega gegnum þennan vetur. Þegar allt kemur til alls vantaði talsvert upp á að Indy menningin stæði undir væntingum í vetur. Ýmsu má kenna um það, þá helst tímaleysi og leiðinlegum veðrum framan af vetri (maður leggur ekki upp í ferðir á þessum molum nema maður sjái nokkurn vegin framfyrir sig). Undirritaður var þó eflaust einna duglegastur að hreyfa gæðingana, enda tilvalið að gera slíkt í bústaðarferðum vetrarins. Ég hélt úti 4 sleða Indy útgerð þennan veturinn og allir fengu að hreyfa sig. Er skemmst frá því að segja að þeir stóðu sig allir með prýði þó svo að einn hafi reyndar farið bilaður í geymslu. Verður ekki að segja betur frá því ? Fyrir ári síðan eignaðist ég Polaris Indy Storm 800 ´95. Þetta hafði lengi verið draumur, alveg frá því að ég barði þennan sleða fyrst augum á árlegri vélsleðasýningu í gömlu Skemmunni á Akureyri 1995. Fljótlega eftir sýninguna eignaðist akkúrat þessi sleði heimili í Öxnadal, og var þar allar götur þangað til ég eignaðist hann. Hann hafði vissulega látið á sjá útlitslega, greinilega verið geymdur úti löngum stundum. En þegar kom að kraminu þá var engu líkara en hann hefði aldrei verið keyrður. Ekki er hægt að finna slit í tækinu, og akstursmælið sýndi heilar 1200 mílur eftir öll þessi ár. Sleðinn var settur í allsherjar útlits „make-over“ og er í dag með nýsprautuðu húddi með nýjum strípum, nýju gleri, nýju sætisáklæði og lengi mætti telja. Ég hafði ekið sleðanum allnokkuð í bústaðnum í vetur, og voru það fyrstu gangsetningar á sleðanum í nærri því áratug. Það var auðvitað ákveðin fífldirfska að gangsetja tækið án þess að fara í mótorinn fyrst sleðinn hafði staðið svona lengi. En ég ákvað engu að síður að láta á það reyna. Eftir að hafa hrist úr sér hrollinn í fyrstu skiptin var sleðinn var að sótvirka, mjög öflugur og heill allur saman. Það var því ákveðið að finna rétta tækifærið til að taka alvöru „ferð“ á sleðanum. Það tækifæri kom 8.apríl síðastliðinn. Forláta Indy í eigu kunningja hafði verið skilinn eftir á fjöllum nokkrum dögum vegna slitins startspotta og einhverra blöndungskvilla. Gerður var út björgunarleiðangur og ég sá mér leik á borði og slóst með í för. Til þess að gera langa sögu stutta þá sagði Storm „hingað og ekki lengra“ eftir ca klukkutíma akstur inn Glerárdalinn. Mótorinn fastur og allsherjarverkfall. Um var að ræða sveifaráspakkdós, sem er í sjálfu sér ódýr bilun en tímafrek. Það varð því úr að í „jómfrúarferðinni“ var Storm dregin heim. Ákveðið var að salta þetta í bili, og setja sleðann í sumargeymslu. Júlí er mánuður sumarfrís, og verður mótorinn tekinn úr molanum og farið í gegnum hann á þeim tíma. Þetta reyndist vera síðasta Indy keyrsla þennan veturinn.
»
14.04.2010 17:38:22 / Alli
»
29.03.2010 12:14:16 / Alli
Páskarnir eru að koma! Við félagar höfum lengi grínast með orðatiltækið "Páskasleðar" eða páskasleðamenn. Það virðist nefnilega oft vera að þeir menn sem luma á gömlum molum inn í hlöðu/skúr og virðast aldrei hreyfa þá, þeir koma út á páskum og taka tuggurnar til handagagns! Ég bind vonir við að þetta ár verði ekki frábrugðið öðrum í þeim efnum, nú er Indy tíminn að byrja!
Undanfarið hef ég fengið þó nokkrar spurningar um rólegheitin hér á síðunni. Og ég skal reyndar viðurkenna að hér hefur verið full rólegt upp á síðkastið!. Það er þó ágæt skýring á þessu öllu saman. Það hefur einfaldlega verið afskaplega lítið að ske hvað varðar viðskipti og sleðaferðir á þessum gömlu molum. Sá hluti manna sem á nýlega sleða samhliða þessum gömlu hefur reyndar keyrt grimmt í vetur því það má Guð vita að ekki hefur vantað snjóinn hér Norðanlands, og sér í lagi í nágrenni Akureyrar. Raunar er snjókoma úti akkúrat núna og sennilega hafa komið 20-40cm af jafnföllnu púðri bara í nótt. Þessi vetur hefur annars verið mjög skondin. Manni heyrist að varla hafi komið nokkur vetur í mörgum landshlutum og það verður að viðurkennast að þau ferðalög sem undirritaður hefur farið í undanfarið hafa ekki boðið upp á mikinn sleðaakstur. Hið árlega Mývatnsmót sem við félagar vorum viðstaddir um daginn fór eiginlega alveg fyrir ofan garð og neðan vegna snjóleysis (mótið sem slíkt gekk vel en hætta þurfti við fyrirhugaða „Indy samkomu“ vegna snjóleysis). Tíðarfarið hefur líka verið fremur einkennilegt í vetur, moksnjókoma/hláka/mikið frost/snjókoma/asahláka. Þetta hefur búið til skrýtið færi sem oft hefur kallað á snjóflóðahættu og/eða mjög mikinn púðursnjó. Það hefur sem sagt ekki verið „Indy-hliðhollt“ færi enn að mínu mati. EN, þetta stendur allt til bóta! Apríl er mikill sleðamánuður í þessum landshluta og vonir standa til að nú fari Indy ferðirnar að detta inn og vefsíðan mun að sjálfssögðu birta myndir og upplýsingar úr þeim ferðum. Menn hafa verið að brasa í skúrum undanfarið og margar skemmtilegar græjur hafa verið að detta í gang nýverið. Menn eru flestir orðnir ansi vel settir með sleða og ég reikna ekki með miklum viðskiptum það sem eftir lifir vetrar. Talandi um viðskipti, þá hef ég trú á að menn hafi tekið eftir all nokkru verðrisi í vetur á þessum sleðum. Það var svo sem alveg vitað að um leið og menn fengju áhuga á þessum tækjum aftur þá myndi fjöldinn allur af tækifærissinnum rísa upp og reyna að græða á næsta manni. Seint myndi ég af öllum mönnum halda því fram að þessi tæki ættu að vera verðlaus, þvert á móti standa þeir oftast betur undir sínum verðum en önnur eldri tæki, en það verður þó að viðurkennast að oft á tíðum erum menn uppí skýjunum með verðlagningu á þessu. Engin greinarmunur virðist vera gerður á árgerðum eða ástandi og skyndilega eru allir sleðar orðnir „molar“. Það er eflaust skilgreiningarmunur á því milli manna hvað þeir kalla „mola“ og oft virðist hann vera ansi mikill! En þetta eru nú bara hugrenningar. Þessir sleðar kosta bara það sem menn eru reiðubúnir að borga fyrir þá og það er ekkert út á það að setja. En það er best að hætta þvaðrinu. Það standa vonir um mikla Indynotkun um páskana og myndavélin verður aldrei langt undan. Menn mega búast við íburðarmikilli færslu eftir páska! Kær kveðja, AÓ.
»
21.02.2010 19:19:14 / Alli
Sælir lesendur. Okkur hefur verið bent á að þessi sleði sé nú til sölu ef að semst um verð. Þetta er eins og fyrr segir Polaris Indy XLT Special '93 árgerð. Vélin er 3 cylendra 580cc, og ég sé ekki betur en undir sleðanum séu Fox gasdemparar á gamla mátann. Nánari upplýsingar veitir Ari á eftirfarandi stöðum. sími: 845-9784 arisaemunds@hotmail.com
»
27.01.2010 22:43:24 / Alli
Má til með að skutla inn tveimur flottum myndum sem fundust í safni E.Egilssonar. Sleðinn er Indy Ultra '97 sem vefstjóri á í dag. Á heitum sumardegi í Þingeyjarsýslu !  ...og við Dettifoss í vetrarbúningi..  Líklegast eru þessar myndir teknar milli '98 og '99...góðir tímar  Kv. AÓ.
»
03.01.2010 22:19:12 / Alli
Jæja...er ekki við hæfi að hafa fyrstu færslu ársins nokkuð veglega ? Við Norðlendingar höfum notið einstakrar veðurblíðu undanfarið. Ég veit svo sem ekki hvort hinn almenni borgari metur mikinn snjó og -10° til - 20° frost sem veðurblíðu, en þetta er auðvitað draumaveðrátta vélsleðamannsins. Alveg frá þriðja í jólum hefur verið mikill kuldi, algjör stilla og heiðskír himinn, enda hafa vélsleðamenn í unnvörpum nýtt sér blíðuna og haldið til fjalla. Undirritaður fagnaði einmitt einmitt nýja árinu með því að slíta út eiginn INDY flota og hélt til í bústað í nokkra daga. Haustið hefur farið í að gera sleðana sem næst fullkomna, og það var mikill léttir og gleði fólgin í því að sjá (og finna) þá öskrast upp fjallshlíðar og brekkur. Allir þrír stóðust prófið og voru hver öðrum betri.  Hér að neðri mynd erum við sem sagt að horfa á (frá v - h): Indy Ultra 680cc '97 (með '96 húddi). Indy Storm 800cc '95. Indy XLY SP 600cc '95.  En ef við víkjum að öðrum málum, þá komumst við Indymenn á snoðir um mjög merkilegan sleða rétt fyrir jólin. Vegna anna í kringum hátíðarnar var ákveðið að taka ekki á málinu fyrr en á nýárinu. Hefst hér sagan: Við fréttum af Indy sleða sem kynni að vera falur hér í nágrenninu. Sleðinn var kynntur okkur sem svartur Indy RXL 650.....Eitthvað hikstuðu menn þegar þeir heyrðu þessa lýsingu því þorrinn af RXL sleðum hérlendis og annars staðar hefur alltaf verið dökkblár. Eftir nokkra rannsóknarvinnu (sem þýðir yfirleitt eitt símtal í Rúnar nokkurn Vatnsdal) þá kom upp sú kenning að þetta gæti verið einn örfárra RXL sleða sem væri 1990 módel. Það kemur á daginn að árið 1990 var verið að undirbúa markaðssetningu INDY RXL sleðans og bauðst "dílerum" að fá sendan einn sleða til að sýna og kynna fyrir áhugasömum...því árið eftir (1991) stóð til að fjöldaframleiða og selja þessa sleða (sem svo varð..þeir komu í unnvörpum rétt fyrir áramót '90-'91, þá bláir og hvítir). Það má Guð vita hvernig þessi sleði rataði hingað til lands, annaðhvort er þetta eintakið sem Tómas Polarisforingi átti, eða þá innfluttur sleði sem hefur fengist fyrir algjöra tilviljun erlendis. Þetta stóðst þó allt, sleðinn er 1990 módel af Indy RXL 650cc og að sjálfssögðu var hann keyptur inn í Indyvinafélagið.  ...og ekki skemmir það fyrir að sleðinn er mjög vel með farinn og heillegur undir rykinu!  Í öðrum tíðindum má nefna að á dögunum bárust okkur myndir af sjaldséðri sleðategund hérlendis, þótt ótrúlegt megi virðast. Þessi fallegi Indy XCR 600 '96 er staddur í nágrenni Sauðárkróks ef mér skjátlast ekki og á það gott heimili. Við þökkum sendanda fyrir myndina, gaman að sjá að það er allavega einn svona sleði til í góðu lagi!  Við látum þetta duga í bili, við munum dæla inn myndum þegar menn fara að drífa sig í ferðir og pússa þessa gripi sem búið er að kaupa undanfarið. Gleðilegt ár sleðamenn. AÓ.
»
26.12.2009 22:33:01 / Alli
Gleðileg Jól allir Indyvinir. Í sama mund bjóðum við veturinn velkominn á Akureyri!  ....Sénsinn var auðvitað notaður, og þessi jólasveinn fékk að viðra sig á Jóladag   ...og að lokum óskum við góðvini okkar Agli Egilssyni til hamingju með að hafa grafið upp þennan 1990 Indy 650! Þessi mynd er tekin korteri áður en sleðanum var "slátrað", það á víst að fara yfir hverja skrúfu í þessum!  Jólakveðja!! Indymenn.
»
Síður: 1 2
|
Heimsóknir
Í dag: 269 Alls: 74974
|